föstudagur
Rétt í þessu var ég að klára að borða yndislegan mat frá krua thai mér til mikillar ánægju mmm.. '
Allavega áðan fór ég út í rauðu úlpunni hennar viggu. ég fór að hitta Ragnar Fjalar og við fórum í Iðu, þegar við vorum rétt ókomin byrjaði að snjóa og þá var ég svo jólaleg í rauðu úlpunni, mig langar að jólin komi núna.
Jólin eru löngu komin hjá Ikea þau mættu alveg flýta sér til mín.
ég nenni ekkert að vera að skrifa hér. ég held að von mín um að verða einhvertímann ofurbloggari sé að renna út í sandinn ég þarf þá bara að sætta mig við að vera wonderwoman. Maður getur ekki alltaf verið allt!
Bless og hafið það gott á þessu föstudagkvöldi
ég er farin að berjast við veðrið!