S
Friday, July 27, 2007
  Isbjörn
Í kvöld komst ég að því að Knútur er ekki bara vinur einhvers eins og ég helt. hahaha vá sjit.
Sveinn sagði mér að Knútur væri fyrsti ísbjörninn sem hefði fæðst í einhver mörg ár 30 ár sagði Sveinn.
Vá mér finnst fyndið að ég hafi ekki vitað þetta þótt að þegar Sveinn sagði mér þetta þá rámaði mig eitthvað fjölmiðlafár um ísbjörn.
En nú veit ég að Knútur er 7 mánað og verður líklega ekki fullvaxinn fyrr en eftir um 4 ár.Ég veit líka að um 5000 manns koma að sjá Knút í dýragarðinum í Berlín á hverjum degi.

Meðfylgjandi mynd er af Knúti


Hann er svaðalega sætur

Ég vona að allir hafi það gott á þessu föstudagskvöldi. ég er að lesa bók sem heitir sumarljós og svo kemur nóttin mér finnst hún fín það sem eg er buin með
 
Sunday, July 22, 2007
  Alltaf
Alltaf er orð sem hefur misst merkingu sína. Þetta orð er ofnotað. Fólk segir; Þú ert alltaf að tala um þetta. Hann lætur alltaf svona, hún er alltaf að gera eitthvað af sér eða þú gerir þetta alltaf.

Alltaf er eitthvað sem er alltaf ekki stundum eða oft.

Fólk borðar alltaf á hverjum degi og vaknar alltaf. Sumir myndu kannski fara að snúa útúr og segja já en hvað ef þú sefur bara í 3 sólarhringa samfleytt þá vaknaru ekki á hverjum degi, þær undantekningar eiga ekki við í mínum texta.
Mig langaði semsagt bara að koma þessu á framfæri því ég er byrjuð að taka eftir því meira og meira hversu margir nota þetta orð. Það hljómar kannski eins og ég sé alveg fáranlega mikið á móti notkun orðsins alltaf og noti það ekki sjálf en það er ekki þannig ég nota það hvorki minna né meira en aðrir sem ég þekki.

Hér er ég með einum sem strák sem ég þekki og einni partýlöggu sem ég þekki ekki en er Alltaf í stuði!
 
Wednesday, July 11, 2007
  I love my english romance
 
Thursday, July 05, 2007
 
Hæ ég var í klippingu. ég rakaði allt hárið af mér..
það verður spennandi að sjá hvað fólki finnst.
 

Name:
Location: Reykjavík, Iceland

ís

Archives
October 2006 / November 2006 / December 2006 / February 2007 / March 2007 / April 2007 / May 2007 / June 2007 / July 2007 / August 2007 / September 2007 / October 2007 / November 2007 / December 2007 / January 2008 / February 2008 /


Powered by Blogger

Subscribe to
Posts [Atom]