S
Thursday, August 30, 2007
  JC/DC
Vá ég hef fundið ótrúlega skemmtilega síðu. Þetta er síða hjá manni sem heitir Jean-Charles de Castelbajac (JC/DC). Hann er fatahönnuður og svo hefur hann verið með sýningar og margt fleira. Og þetta er síðan hans

http://www.jc-de-castelbajac.com/

Ef einhver hefur áhuga á að skoða..
 
Tuesday, August 21, 2007
  AstroPia
Okei, ég get verið emópía og ég hef ekkert alltaf ástæðu til þess en stundum samt.. EN þessi maður á rosalega bágt og má vera emó all the time.

http://www.mbl.is/mm/frettir/myndskeid.html?file_id=21438
(ég kann ekki að setja vídeó inná)

Hann á meira bágt en allar þær emótussur sem ég þekki. Ég held jafnvel að sumum finnist kúl að vera emó og hafa alltaf miklu mikilvægari hluti en aðrir að gera og vera alltaf að gera mest í lífinu. Ekki að maður eigi ekki að reyna að fá sem mest Út Úr lífinu það er ekki það sem ég er að tala um.

Í dag er þriðjudagur og ég fer að byrja lokaárið mitt í menntaskóla á morgun og ég ætla að reyna að standa mig vel eins og planið er alltaf hah.
 
Monday, August 20, 2007
  Hestur
Hérna langar mig að sýna eitt sem er ógeðslega fyndið, þessi mynd er af minnsta hesti í heimi.
Minnsta hestategund í heimi er tegund sem heitir Falabella, minnsti hestur af þessari tegund er Thumbeline sem þjáist af vaxtastöðnun. Hún er 43 cm há.


 
Wednesday, August 08, 2007
  Remix og Kynlifsdraumar..
Nú hef ég loksins lokið þessu sumarfjarnámi. Ég var vakandi til 5 eða 6 í nótt og vaknaði svo aftur klukkan half8 til að læra skellti mér í prófið og vil ekki tala um það meir. Eins og vinir mínir vita á ég bilaðan síma og ég get bara stundum kveikt á honum og hann hleðst bara þegar hann er í stuði til að hlaða sig, þannig að eftir profið labbaði eg af stað eins og einhver vera frá annarri plánetu úr FÁ þangað til að berglind rakst á hræið þ.e. mig. og skutlaði mer heim.

Í nótt svaf ég bara í 2-3 tíma en sjit það sem mig dreymdi, mig dreymdi kynlífsdraum. undir venjulegum kringumstæðum myndi ég ekki segja það hér á bloggi en þar sem ég veit að aðeins þeir sem þekkja mig mjög vel lesa þetta þá er mér alveg sama haha. Það er geðveikt hvað mann dreymir stundum. Það er oft sagt að mann dreymi bara í svarthvítu en mig hefur samt dreymt í lit og líka nokkrir sem ég þekki. Mér finnst svo ótrúlega gaman að dreyma og mig dreymir alltaf mjög mikið þegar ég kem á nýja staði. Þegar ég fór í heimsókn til vinkvenna minna og kunningja í London í apríl dreymdi mig ógeðslega mikið og ég man ennþá suma draumana. Ég held ég ætli samt að hætta þessu draumatali og fara að sofa. (ég vona að mig dreymi eitthvað skemmtilegt.)

p.s. segir maður kannski ekki p.s. í bloggi..., allavega mig langar ýkt mikið á deit með skemmtilegum og kynþokkafullum strák.

p.s.s. ég ætla ekki að gera eitthvað svona "lag dagsins" en ég er alltaf að hlusta á tvö lög nuna, eitt þeirra er Mer du Japon (Kris Menace Remix) og hitt er nýtt lag með Stephan Bodzin sem ég veit ekki hvað heitir. ef ég kynni það myndi ég setja þau herna inná en ég kann það ekki. ef einhver af þeim sem les þetta kann það sem eg efast samt um þá megiði kenna mér það.
 

Name:
Location: Reykjavík, Iceland

ís

Archives
October 2006 / November 2006 / December 2006 / February 2007 / March 2007 / April 2007 / May 2007 / June 2007 / July 2007 / August 2007 / September 2007 / October 2007 / November 2007 / December 2007 / January 2008 / February 2008 /


Powered by Blogger

Subscribe to
Posts [Atom]