Pabbar í pössun í Hagkaupum
Ég er hvorki formaður mannréttindanefndar né róttækur femínisti en þetta finnst mér samt absúrd. Þetta finnst mér algjör karlrembuskapur, hver segir að konur eigi að versla frekar en karlar, afhverju fá þær ekki herbegi þar sem er horft er á desperate housewifes og jafnvel boðið upp á rauðvín og osta á meðan...
Í nýrri verslun Hagkaupa í Holtagörðum er sérstakt pláss ætlað körlum meðan konurnar kaupa inn fyrir heimilið. Í plássinu eru fjögur sæti og stórt sjónvarpstæki, þar sem boðið verður upp á sýningar frá ensku knattspyrnunni. Einnig stendur til að tengja Playstation-leikjatölvu viðtækið, til að stytta karlpeningnum stundirnar.
„Þetta er bara alger snilld," sagði Finnur Freyr Harðarson, örþreyttur viðskiptavinur Hagkaupa, í gær aðspurður um ágæti athvarfsins. „Það eina sem vantar er að hér sé bjór í boði yfir enska boltanum. Að vísu veit ég ekki hvort ég nenni að koma hingað til að versla með konunni, því ég tók þátt í að byggja þetta húsnæði."
Sóley Tómasdóttir, formaður mannréttindanefndar Reykjavíkurborgar og róttækur femínisti, segist hissa á þessari þjónustu Hagkaupa. „Mér finnst þetta gamaldags viðhorf til kynjanna. Það er ótrúlegt að jafn framsækiðfyrirtæki og Hagkaup er skuli ekki átta sig á því að það eru bæði kyn sem bera ábyrgð á innkaupum fjölskyldunnar."